Gaudete!
Haustið 1999 gaf Kammerkór Hafnarfjarðar út geisladiskinn Gaudete! með jólatónlist. Auk kórsins syngja og leika á diskinum Þórunn Guðmundsdóttir, sópran; Helga Loftsdóttir, mezzósópran; Gunnar Gunnarsson, þverflautuleikari; Ástríður Alda Sigurðardóttir, píanóleikari; Lenka Mátéová, orgelleikari; Þröstur Þorbjörnsson, gítarleikari og Jón Björgvinsson, slagverksleikari.
Diskurinn fékk mikið lof gagnrýnenda, sem og annarra tilheyrenda, og hefur talsvert verið leikinn í útvarpi.
Eftirfarandi lög eru á diskinum:
- Gaudete! - Úr Piae Cantiones 1582
- Borið er oss barn í nótt - Frá Mosburg 1350/Anders Öhrwall
- Vögguvísa á jólum - John Rutter
- Boðun Maríu - Baskneskt þjóðlag
- Heims um ból - Franz Gruber/Gustav Schreck
- Blikandi stjarna - Ruben Liljefors
- Helgimynd - Frank Martin
- Hjarðmennirnir - Frank Martin
- Ó, Jesúbarn - Eyþór Stefánsson
- Ave maris stella - Piae Cantiones 1582/Heikki Klementti
- Blíða nótt, blessaða nótt - Franz Gruber
- Ave Maria - Anton Bruckner
- Stjörnur ljósar loga - Harold Darke
- Vöggusálmur - Amerískt þjóðlag
- Jólanótt - Franskt jólalag/Þorkell Sigurbjörnsson
- Bíum og bíum - Enskt jólalag/Þorkell Sigurbjörnsson
- Heiðra skulum vér - Danskt þjóðlag/Þorkell Sigurbjörnsson
- Jól, jól, gleðileg jól - Gustaf Nordqvist
- Aðventuljóð - Gustav Brand
- Ég hugsandi reika - Amerískt þjóðlag
- Hin fyrstu jól - Carl Möller
- Kvöldsálmur - Enskt þjóðlag
- Kvæðið um Kristslíkamann - Enskt þjóðlag/Trond Kverno
Geisladiskinn, sem kostar 1500 krónur, má kaupa hjá kórfélögum eða panta í netfanginu kammerkor@kammerkor.is.