Um kórinn

Kammerkór Hafnarfjarðar er sjálfstæður kór skipaður ungu fólki. Kórinn var stofnaður í byrjun ársins 1997. Síðan þá hefur hann eflst og er nú talinn með betri kórum sinnar tegundar hér á landi. Í nóvember 1998 gaf kórinn út geisladiskinn Gaudete! og hlaut hann frábæra dóma.

Kórinn hefur ávallt leitast við að hafa efnisskrá sína sem fjölbreyttasta og hefur flutt veraldlega og kirkjulega kórtónlist allt frá miðöldum fram til nútímans auk annarrar tónlistar, til dæmis djass og þjóðlagatónlistar.

Kammerkórinn hefur af og til lagt land undir fót og meðal annars haldið tónleika í Grafarvogi, Kirkjubæjarklaustri, Kaupmannahöfn, Vestmannaeyjum og Vínarborg.

Atburðir framundan

29. febrúar 2012 kl. 20:00

Æfing

7. mars 2012 kl. 20:00

Æfing

14. mars 2012 kl. 20:00

Æfing

17. mars 2012

Árshátíð!

29. apríl 2012 kl. 20:00

Tónleikar. Nánar auglýstir síðar