Kammerkórinn hefur á síðustu árum komið sér upp öflugum hópi velunnara sem eru áskrifendur að tónleikum kórsins. Fyrirkomulagið er þannig að hver styrktarfélagi greiðir 6000 króna áskriftargjald fyrir hvert starfsár kórsins. Í þakklætisskyni fær hann tvo miða á þrenna tónleika kórsins á því starfsári. Á þann hátt fær styrktarfélaginn hvern miða á 1000 krónur.
Meginþorri styrktarfélaga Kammerkórsins er fjölskyldumeðlimir og vinir kórfélaga, en þeir takmarkast þó ekki við þann hóp. Hægt er að gerast styrktarfélagi kórsins með því að fylla út formið hér fyrir neðan. Einnig má prenta út
þar til gert eyðublað, fylla það út og senda okkur það á:
Kammerkór Hafnarfjarðar
Pósthólf 23
222 Hafnarfjörður
Og svo má senda tölvupóst með upplýsingunum á midar@kammerkor.is.
Númerið á bankareikningi kórsins er 1101-05-406316
og kennitala kórsins er 600201-2980.