Fréttir

feb.16
Árshátíð framundan
16.2.2012 10:46:00 | Atli Týr Ægisson skrifaði

Það væri til lítils að vera í þessum kór ef það væri bara fyrir sönginn. Söngurinn er vissulega stór partur af þessu öllu saman, en menn verða líka að kunna að skemmta sér. Og til að kórfélagar fái útrás fyrir skemmtanaþörfina verður haldin árshátíð fljótlega. Kórfélagar eru því vinsamlegast beðnir um að taka frá laugardagskvöldið 17. mars, en það er einmitt kvöldið sem gleðskapurinn fer fram.

Elfa og félagar í skemmtinefndinni munu veita kórfélögum nánari upplýsingar og fyrirmæli þegar nær dregur.

meira...
jan.23
Ný heimasíða!
23.1.2012 14:16:00 | Atli Týr Ægisson skrifaði

Þetta er nýja heimasíðan okkar!

Er hún ekki fín?

Það á reyndar eftir að sníða hana aðeins betur til og bæta við efni. Það gerist allt í fyllingu tímans.

meira...
des.25
Desemberdagskráin
25.12.2011 11:15:08 | Einar Hjaltason skrifaði

Vel heppnaðri aðventu- og jólatónleikatörn er nú lokið. En því fer fjarri að kórinn sé kominn í jólafrí, því ýmislegt er framundan í desember. 

Laugardaginn 3. desember verða haldin Syngjandi jól í Hafnarborg. Þá koma saman 24 kórar sem samanstanda af söngfólki á öllum aldri. Kammerkórinn syngur klukkan 16:40-17:00. 

Á Þorláksmessukvöld, 23. desember, verður farið í kyndilgöngu um miðbæ Hafnarfjarðar. Lagt verður af stað frá Fríkirkjunni kl. 19:30 en göngunni lýkur í Jólaþorpinu. Kórfélagar munu leiða sönginn í göngunni samkvæmt venju síðustu ára. 

Á aðfangadag, 24. desember, mun kórinn svo syngja í sjúkrahúsmessu á Kleppi, eins og gert hefur verið undanfarin ár. Helgistundin hefst klukkan 14:00 á aðfangadag.   meira...

Atburðir framundan

29. febrúar 2012 kl. 20:00

Æfing

7. mars 2012 kl. 20:00

Æfing

14. mars 2012 kl. 20:00

Æfing

17. mars 2012

Árshátíð!

29. apríl 2012 kl. 20:00

Tónleikar. Nánar auglýstir síðar